miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Merkisdagur í dag.

Í dag er merkilegur dagur. Hún Ragnheiður Petra, litla skottan mín, á afmæli í dag. Ótrúlegt til þess að hugsa hvað tíminn flýgur áfram og þessi litlu dýr eru fljót að stækka.......og byrja að ybba gogg! Fyrir tveimur árum var hún svo lítil og bara nýskriðin í heiminn.......í dag heimtar hún súkkulaði og hrekkir pabba sinn. Ótrúlegt.

Til hamingju með daginn, Ragnheiður Petra.

miðvikudagur, nóvember 08, 2006

Vertu sæll, Hr. Benedikt.

Að öllu líkindum hafa flestir sem eru innan ættarinnar eða henni tengdir heyrt sorgartíðindin úr Skagafirðinum. Síðastliðinn föstudag, 3.nóvember kl. 11:55, lést Benedikt Hundsson á heimili sínu. Útförin fór fram á laugardaginn eftir. Eftirfarandi voru viðstaddir útförina: Mamma, pabbi, afi, amma, Sóla systir og ég. Benedikt varð 16 ára og 30 daga.

Takk fyrir samveruna Benni bróðir.
© Ísak Sigurjón, 2006